TFIE is not responsible
for external sites.
Other Sites
Karen Zerby / David Berg
Virginia Brandt Berg
The Wine Press
NuBeat / Aurora Products
AntTracts / Comictrax
Subscribe to
Activated Magazine
Podcasts
Alveg frá því seint á sjöunda áratugnum hefur Alþjóða-fjölskyldan sem hluti af Jesú-byltingunni vaxið og dafnað og síðan breiðst út um víða veröld sem trúboðshreyfing og eru aðildafélagar nú í yfir 90 löndum. Aðildarfélagar eru nú um 4.500 vítt og breitt um heiminn.
Alþjóða-fjölskyldan leitast við að byggja upp opið trúarsamfélag, sem skiptir máli, er framsækið og gerir ráð fyrir fjölbreytileika og nýsköpun. Við hvetjum félaga okkar til að nýta krafta sína til hins ýtrasta og fylgja Guði samkvæmt sinni eigin sannfæringu og trú. Gildi okkar og kjarni liggja í því að tjá skuldbindingu okkar við Guð og löngun okkar til að hafa Hann að leiðtoga lífsins.

Þjónusta Alþjóða-fjölskyldunnar starfar sem leiðandi afl í Alþjóða-fjölskyldunni (TFI). Hún ábyrgist ýmsa þjónustu fyrir trúboða hennar, þar á meðal útgáfu á uppbyggilegu, kristilegu efni fyrir trúboða og úthlutar styrkjum til trúboðsstarfa og verkefna.
Karen Zerby og Steve Kelly (betur þekkt undir höfundanöfnunum Maria Fontaine og Peter Amsterdam) eru núverandi stjórnendur Alþjóða-fjölskyldunnar (TFI).

Árið 1995 samþykkti Alþjóða-fjölskyldan (TFI) Stjórnskrá sem skjalfestir trú, réttindi og ábyrgð fjölskyldumeðlima.
Ásamt „Trúaryfirlýsingu okkar“ gerir stjórnskrá TFI grein fyrir mikilvægustu grundvallaratriðum, markmiðum og trú hreyfingarinnar.

Alþjóða-fjölskyldan (TFI) er meðfylgjadi aðild allra kynþátta án þess að gera greinarmun á menningu, kynferði eða þjóðerni. Væntanlegir aðildarfélgar samþykkja kenningar okkar í „Trúaryfirlýsingu okkar“ og eru fúsir til að styðja þau markmið sem þeir velja sér sjálfir. (Stjórnskrá, II. kafli: Aðild Lesefni á Ensku).
Aðildarfélagar og samfélög, þótt þau aðhyllist sömu trú, starfa þau sjálfstætt innan vébanda Stjórnskráar Alþjóða-fjölskyldunnar (TFI).

Breytingar og endurnýjun hafa alltaf fylgt menningu Alþjóða-fjölskyldunnar (TFI). Þetta hefur gætt meðlimi hennar kynslóð eftir kynslóð hæfni til að aðlaga sig að breyttum aðstæðum og leita sér nýrra leiða og aðferða í lífsleikni við margar og mismunandi aðstæður. Heilbrigð lífsviðhorf styrkja vináttuböndin og gefa fólki tilfinningu fyrir því að það tilheyri einhverju mikilvægu.
Sameiginlegt heimilishald hefur gegnt mikilvægu hlutverki í Alþjóða-fjölskyldunni (TFI) sögu hennar og þróun frá byrjun. Félögum er í sjálfsval sett hvort þeir taka þátt í sameiginlegu heimilishaldi eða ekki.

Við trúum því að börn séu ómetanlegar gjafir frá Guði og eiga rétt á bestu umönnun sem völ er á í því umhverfi þar sem þau lifa og þar sem líkamlegum, menntunarlegum, vitsmunalegum, siðerðilegum og tilfinningalegum þörfum þeirra er ríkulega mætt. Börnum er ætlað að vera elskuð og eiga að fá að alast upp við heilbrigð lífsviðhorf í jákvæðu og barnvænu umhverfi.
Barnaverndarmál
Alþjóða-fjölskyldan (TFI) er skuldbundin til að forða börnum sínum frá skaða og leggur mikla áhersu á að þau kunni að sjá fyrir sér og geti unnið úr sínum vanda. (Barnaverndarlög og stefna Alþjóða-fjölskyldunnar (TFI)). | Bæklingur (pdf).

Alþjóða-fjölskyldan býr yfir ríkri tónlistararfleifð. Félagar hennar hafa frumsamið þúsundir laga þar sem gætir mikillar fjörbreytni hvað varðar lagaval og stíl.
Heimsækið NuBeat og njótið margra klukkustunda langrar dagskrár af tónlist yður að kostnaðarlausu og sem er flutt á fjölmörgum tungumálum.

Alþjóða-fjölskyldan (TFI) hefur framleitt fjöldann allan af andlegu efni í prentuðu og hljóðrituðu formi með myndböndum og á öllum helstu tungumálum heims. Milljónir manna um allan heim hafa fengið sýni af þessu efni frá Alþjóða-fjölskyldunni, verslunum hennar og á veraldarvefnum.
Vörur Alþjóða-fjölskyldunnar (TFI) eru með kristilegu ívafi, andríkar bækur fyrir börn og fullorðna sem virka sem andlegar reglur fyrir daglegt líf og kenna grunnatriði kristinnar trúar og miðla ríkjandi lífsstíl.

Alþjóða-fjölskyldan (TFI), rekur uppruna sinn til ársins 1968 til Huntington Beach, Kaliforníu, þar sem stofnandi hennar, David Brandt Berg (1919-1994), ásamt fjölskyldu sinni, setti á laggirnar n.k. aðstoð og þjónustu til stuðnings við hina uppreisnargjörnu æsku gagnvart ríkjandi menningu og stjórnkerfi þessa tímabils.
Í lok ársins1969 þegar hópurinn taldi 100 félaga var hann kallaður “Guðsbörnin” af fjölmiðlum. Eftir 1972 var þegar búið að setja upp 130 bækistöðvar sem allar ráku sameiginlegt heimilishald út um allan heim. Snemma árið 1978 voru Guðsbörnin endurskipulögð og voru síðan þekkt sem Fjölskyldan.
Á næstu fjóru áratugnunum urðu miklar breytingar á skipulagi og aðferðum. Árið 1995 var stjórnskrá samþykkt sem staðfesti trúarviðhorf, réttindi og skyldur félaga Fjölskyldunnar.
Árið 2010 samþykkti Alþjóða-fjölskyldan enn á ný breytingar á skipulagi, aðferðum og fyrirmyndum þar sem hún lagði fram endurskipulagða áætlun og var ljóst að þörf var hjá hreyfingunni að gera ráð fyrir meiri fjölbreytni en halda samt áfram sömu markmiðum og fyrr.